
Þessi kaka er búin til úr því sem ég átti í eldhúsinu. Þetta er eitthvað sem flestir eiga til hjá sér ef þeir hafa bakað áður, ALGJÖR snilld.
Það sem þarf í kökuna er:
2 egg
100g smjör
3 dl hveiti
2 dl sykur
2 tsk lyftiduft
2 tsk vanillusykur
1 dl mjólk
Byrjið á því að hita ofninn í 185gráður á undir- og yfirhita. Smjörið er síðan brætt og mjólk bætt út í þegar það hefur kólnað. Egg og sykur er þeytt þar til blandan verður ljós og létt. Hveiti, lyftidufti og vanillusykri er þá blandað saman í sér skál og bætt út í smátt saman við eggjablönduna til skiptis við smjör/mjólkurblönduna. Degið er sett í kökuform (ég notaði eldfastmót og spreyjaði pam spreyi áður). Sett svo í ofninn í ca. 25-30 min.
Vanillu smjörkrem:
150g smjör (VIÐ STOFUHITA)
200g flórsykur
2 msk síróp
2 tsk vanillusykur
Smjörið er hrært þar til það er orðið kremkennt. Flórsykri (sigtuðum) og vanillusykri er bætt hægt útí á meðan hrært er. Síðan er sírópinu blandað við í lokinn. Ef kremið er of þykkt má þynna það með smá mjólk.
Svo að sjálfsögðu bætið þið matarlit út í ef þið viljið lit á kremið.
Það sem er einstaklega gott við smjörkremið er vanillusykurinn og sírópið
VOILA!
Karen Mjöll
YKKUR ER VELKOMIÐ AÐ FYLGJAST MEÐ OKKUR HÉRNA!
@MAMIITA_COM
@MAMIITA.COM